Forsíða

Sjáið hverju Lýðfrelsisflokkurinn vill koma til leiðar...

 

Breytingar

Við styðjum aðildarviðræður við ESB og leggjum áherslu á að skoða  gaumgæfilega þann samning sem okkur Íslendingum mun standa til boða. Sjá hér.

 

Uppbygging

Við viljum vinna að atvinnuuppbyggingu um land allt með áherslu á fjölþætta atvinnustefnu og nýsköpun.

Skapa þarf 30.000 ný störf á næstu árum. Sjá hér.

 

Við erum fylgjandi hugmyndafræðilegri stefnu borgaraflokkanna í meginlandi norður Evrópu og stefnum að þjóðfélagslegri uppbyggingu á Íslandi í anda norræns velferðarríkis og lýðræði.

Á Íslandi er í dag ekkert stjórnmálaafl sem er fulltrúi þeirrar hugmyndafræði sem borgaraflokkarnir / hægri flokkarnir á hinum Norðurlöndunum aðhyllast. Slíkan valkost vantar. Með framboði Lýðfrelsisflokksins býðst kjósendum slíkur valkostur. Sjá hér.

 

10 til 20 þúsund ný störf í matvælavinnslu.

Við eigum að fagna þeim erlendu fyrirtækum sem hér vilja fjárfesta. Á það jafnt við um stóriðju í formi álvera og gagnaver, ferðaþjónustu og rannsókna og annarri starfsemi sem skapar okkur Íslendingum störf og gjaldeyrir.

Í Evrópu starfa um 10 til 20 þúsund manns við að fullvinna íslenskan fisk í neytendaumbúðir. Með réttum undirbúningi, aðild að ESB og þeim tollum sem þá falla niður, þá ætlar Lýðfrelsisflokkurinn að flytja þessi störf til Íslands. Sjá hér.

 

Lýðfrelsi felst í réttinum til þátttöku, réttinum til að taka ákvarðanir og réttinum til sjálfstjórnar. Þjóðfrelsi felst í tjáningarfrelsi og félagafrelsi. 

Markmið okkar er að stuðla að eflingu lýðræðis, lýðfrelsis og þjóðfrelsis með upplýstum, málefnalegum og rökvísum umræðum og skoðanaskiptum. Áskorun flokksins til þjóðarinnar er að hún efli og nýti tjáningarrétt sinn og gerist virkur þátttakandi í málefnum þjóðfélagsins. Sjá hér.

 

Nýir félagar:

Gerast félagi

Facebook hópur

Fjárframlög

Gerast virkur í starfinu:

Okkur vantar áhugasamt fólk um land allt.

Hafðu samband: 566 7000

 

Lækkun skatta

Flokkurinn vill vinna að því að lækka skatta á almenningi og fyrirtækjum.

Aðhaldi verði beitt hjá opinberum aðilum. Sjá hér.

 

Leiðrétting lána

Lýðfrelsisflokkurinn vill beita sér fyrir leiðréttingu lána og afnámi verðtryggingar. Með krónuna sem lögeyrir þá hefur ekki tekist og mun ekki takast að skapa til langs tíma eðlilegt umhverfi í lána- og vaxtamálum. Sjá hér.

 

Lýðfrelsisflokkurinn  vill standa fyrir breytingum  og uppbyggingu.

· Við viljum gera breytingar á þjóðfélaginu.

· Við viljum standa fyrir uppbyggingu í atvinnulífinu.

Við viljum standa fyrir uppbyggingu í matvælavinnslu, ferðaþjónustu, tækni og iðnaði. Sjá hér.

Við vilum sjá breytingar í gjaldeyrismálum / tökum upp evru, fellum niður verðtrygginguna, lækkum vexti, komum á stöðugleika / innleiðum Maastricht  skilyrðin við stjórn ríkisfjármála og hefjum hér nýtt hagvaxtarskeið. Sjá hér.

                                                              Forsíða      Flokkurinn       Stefnuskrá      Stjórnmálaályktun

 

Manifesto

Nauðsynlegt er að skilja eftir fremsta megni á milli framkvæmdavalds, dómsvalds og löggjafar- og fjárveitingavalds.

Sjá okkar Manifesto hér.

Text Box: LFF

 

Framtíðarsýn

Lífssýn okkar tekur mið af íslenskum og norrænum gildum.

Við aðhyllumst blandað markaðshagkerfi.

Okkar þjóðfélagsstefna er norrænt borgaralegt velferðarsamfélag.

Ný hugsun - ný nálgun

Liberal Democrats

 Lýðfrelsisflokkurinn     Reykjavík - Ísland - Sími: +354 566 7000 - info@lydfrelsisflokkurinn.net

Lýðfrelsisflokkurinn